Hér getur þú nálgast ýmsar upplýsingar sem tengjast meðgöngunni. Meðal þess helsta er nákvæmt yfirlit yfir þroskaferli fósturs, myndir af fóstrinu á hverju stigi ferlisins, gröf yfir meðallengd og þyngd þess o.fl. Við hvetjum gesti til að fylgjast vel með þar sem margar nýjungar eru væntanlegar.
Vöðvar og taugar hafa öðlast virkni og barnið sýnir nú viðbrögð og getur hreyft sig hvenær sem er. Brjóstkassi og kviðarhol hafa tekið á sig endanlega mynd og lungun eru byrjuð að myndast en talsverðan tíma tekur fyrir lungun að ná fullum þroska. Hjartað er komið inn í brjóstholið og slær nú af krafti. Höfuðið hefur þroskast talsvert og hallar nú fram að líkamanum. Munnurinn getur nú opnast örlítið og augun sjást á bakvið himnu sem síðar verður að augnlokum. Augun eru þó enn að þroskast ásamt innra eyra en þar ákvarðast jafnvægi líkamans. Fingur hafa einnig tekið á sig mynd. Þyngd fóstursins er um 2 grömm og lengd um 17 - 22 mm.