Hér getur þú nálgast ýmsar upplýsingar sem tengjast meðgöngunni. Meðal þess helsta er nákvæmt yfirlit yfir þroskaferli fósturs, myndir af fóstrinu á hverju stigi ferlisins, gröf yfir meðallengd og þyngd þess o.fl. Við hvetjum gesti til að fylgjast vel með þar sem margar nýjungar eru væntanlegar.
Nú er fyrsti mánuður meðgöngu senn að lokum kominn og minnir fóstrið á einhvers konar veru líkt og sjá má á myndinni. Litlir angar sem síðar verða að höndum eru farnir að myndast á 26 degi meðgöngunnar. Á 28 degi koma svo þeir angar í ljós sem verða að fótum. Í þessari viku er barnið að meðaltali um 3mm að lengd sem er svipað og stærð hrísgrjóns. Vöxturinn er þó hraður, á 21 degi meðgöngunnar er fóstrið 1,5 mm á stærð en á 28 degi er það orðið 5 mm. Semsagt stækkar þrefalt á 1 viku. Á þessum tíma fara brjóst einnig að stækka örlítið.